Síðari Konungabók 18:1–37

  • Hiskía Júdakonungur (1–8)

  • Yfirlit yfir fall Ísraels (9–12)

  • Sanheríb ræðst inn í Júda (13–18)

  • Yfirdrykkjarþjónninn hæðist að Jehóva (19–37)

18  Á þriðja stjórnarári* Hósea+ Elasonar Ísraelskonungs tók Hiskía,+ sonur Akasar+ Júdakonungs, við völdum.  Hann var 25 ára þegar hann varð konungur og hann ríkti í 29 ár í Jerúsalem. Móðir hans hét Abí* Sakaríadóttir.+  Hann gerði það sem var rétt í augum Jehóva,+ alveg eins og Davíð forfaðir hans.+  Það var hann sem fjarlægði fórnarhæðirnar,+ mölvaði helgisúlurnar og hjó niður helgistólpann.*+ Hann braut líka koparslönguna sem Móse hafði gert+ því að fram að þeim tíma höfðu Ísraelsmenn látið fórnarreyk stíga upp handa henni. Menn kölluðu hana koparslöngulíkneskið.*  Hann treysti á Jehóva+ Guð Ísraels. Enginn Júdakonungur jafnaðist á við hann, hvorki fyrr né síðar.  Hann hélt sig fast við Jehóva+ og hætti ekki að fylgja honum. Hann hélt boðorðin sem Jehóva hafði gefið Móse.  Og Jehóva var með honum. Hann var skynsamur í öllu sem hann tók sér fyrir hendur. Hann gerði uppreisn gegn Assýríukonungi og neitaði að þjóna honum.+  Hann lagði einnig undir sig landsvæði Filistea+ allt til Gasa og umlykjandi svæðis, frá varðturnum til víggirtra borga.*  Á fjórða stjórnarári Hiskía konungs, það er á sjöunda stjórnarári Hósea+ Elasonar Ísraelskonungs, fór Salmaneser Assýríukonungur í herferð gegn Samaríu og settist um hana.+ 10  Assýringar unnu borgina+ eftir þrjú ár. Á sjötta stjórnarári Hiskía, það er á níunda stjórnarári Hósea Ísraelskonungs, var Samaría unnin. 11  Assýríukonungur flutti Ísraelsmenn í útlegð+ til Assýríu og lét þá setjast að í Hala og í Habor við Gósanfljót og í borgum Meda.+ 12  Þetta gerðist af því að þeir hlustuðu ekki á rödd Jehóva Guðs síns heldur rufu sáttmála hans, allt sem Móse þjónn Jehóva hafði lagt fyrir þá.+ Þeir hlustuðu hvorki né hlýddu. 13  Á 14. stjórnarári Hiskía konungs fór Sanheríb Assýríukonungur+ í herferð gegn öllum víggirtum borgum í Júda og vann þær.+ 14  Þá sendi Hiskía Júdakonungur þessi skilaboð til Assýríukonungs í Lakís: „Ég hef brotið af mér. Farðu burt frá mér og ég skal gefa þér hvað sem þú krefur mig um.“ Assýríukonungur krafði þá Hiskía Júdakonung um 300 talentur* af silfri og 30 talentur af gulli. 15  Hiskía lét hann fá allt silfrið sem var í húsi Jehóva og fjárhirslum konungshallarinnar.+ 16  Hiskía Júdakonungur tók* einnig niður hurðirnar á musteri+ Jehóva og dyrastafina sem hann hafði sjálfur lagt gulli+ og gaf Assýríukonungi. 17  Nú sendi Assýríukonungur yfirhershöfðingja* sinn, yfirhirðstjóra* og yfirdrykkjarþjón,* ásamt fjölmennum her, frá Lakís+ til Hiskía konungs í Jerúsalem.+ Þeir héldu af stað til Jerúsalem og tóku sér stöðu við vatnsleiðsluna úr efri tjörninni, við veginn að þvottavellinum.+ 18  Þeir kölluðu á konunginn en Eljakím+ Hilkíason hallarráðsmaður, Sebna+ ritari og Jóak Asafsson ríkisritari* gengu út til þeirra. 19  Yfirdrykkjarþjónninn sagði við þá: „Segið Hiskía: ‚Hinn mikli konungur, Assýríukonungur, segir: „Af hverju ertu svona öruggur með þig?+ 20  Þú segir: ‚Ég er með hernaðaráætlun og herafla til að fara í stríð.‘ En það eru orðin tóm. Á hvern treystirðu fyrst þú dirfist að gera uppreisn gegn mér?+ 21  Þú treystir á stuðning frá Egyptalandi,+ þessum brákaða reyr. Hann stingst inn í hönd þess sem styður sig við hann og fer í gegnum hana. Þannig fer fyrir öllum sem treysta á faraó Egyptalandskonung. 22  Þið segið kannski: ‚Við treystum á Jehóva Guð okkar.‘+ En eru það ekki fórnarhæðir hans og ölturu sem Hiskía hefur fjarlægt?+ Og segir hann ekki við Júdamenn og Jerúsalembúa: ‚Fallið fram fyrir altarinu í Jerúsalem‘?“‘+ 23  Veðjaðu nú við herra minn, Assýríukonung: Ég gef þér 2.000 hesta ef þú getur fundið nógu marga riddara á þá.+ 24  Hvernig geturðu varist árás frá einum landstjóra, jafnvel aumasta þjóni herra míns, þú sem reiðir þig á stríðsvagna og riddara frá Egyptalandi? 25  Heldurðu að ég sé kominn til að leggja þennan stað í rúst án leyfis frá Jehóva? Jehóva sagði sjálfur við mig: ‚Haltu gegn þessu landi og leggðu það í rúst.‘“ 26  Þá sögðu Eljakím Hilkíason, Sebna+ og Jóak við yfirdrykkjarþjóninn:+ „Talaðu við okkur þjóna þína á arameísku*+ því að við skiljum hana. Talaðu ekki við okkur á máli Gyðinga því að fólkið á múrnum gæti heyrt í þér.“+ 27  En drykkjarþjónninn svaraði: „Heldurðu að herra minn hafi aðeins sent mig til herra þíns og til þín með þessi skilaboð? Eru þau ekki líka ætluð mönnunum sem sitja á múrnum, þeim sem munu borða sinn eigin saur og drekka sitt eigið þvag ásamt ykkur?“ 28  Síðan kallaði drykkjarþjónninn hárri röddu á máli Gyðinga: „Heyrið það sem Assýríukonungur, hinn mikli konungur, segir.+ 29  Þetta er það sem konungurinn segir: ‚Látið Hiskía ekki blekkja ykkur því að hann getur ekki bjargað ykkur frá mér.+ 30  Og látið Hiskía ekki telja ykkur á að treysta Jehóva þegar hann segir: „Jehóva bjargar okkur og þessi borg fellur ekki í hendur Assýríukonungs.“+ 31  Hlustið ekki á Hiskía því að Assýríukonungur segir: „Semjið frið við mig og gefist upp.* Þá mun hver og einn ykkar borða af eigin vínviði og eigin fíkjutré og drekka vatn úr eigin brunni 32  þar til ég kem og flyt ykkur til lands sem er eins og landið ykkar,+ lands sem er fullt af korni og nýju víni, brauði og víngörðum, ólívutrjám og hunangi. Þá munuð þið lifa en ekki deyja. Hlustið ekki á Hiskía því að hann blekkir ykkur með því að segja: ‚Jehóva bjargar okkur.‘ 33  Hefur nokkur af guðum annarra þjóða bjargað landi sínu úr höndum Assýríukonungs? 34  Hvar eru guðir borganna Hamat+ og Arpad? Hvar eru guðir Sefarvaím,+ Hena og Íva? Gátu þeir bjargað Samaríu frá mér?+ 35  Enginn af guðum annarra landa hefur bjargað landi sínu úr höndum mínum. Hvernig á Jehóva þá að geta bjargað Jerúsalem frá mér?“‘“+ 36  En fólkið þagði og svaraði honum ekki einu orði því að konungurinn hafði sagt: „Þið skuluð ekki svara honum.“+ 37  Eljakím Hilkíason hallarráðsmaður, Sebna ritari og Jóak Asafsson ríkisritari* fóru síðan til Hiskía í rifnum fötum og sögðu honum hvað yfirdrykkjarþjónninn hafði sagt.

Neðanmáls

Hugsanlega er átt við þriðja árið frá því að Hósea var viðurkenndur sem konungur.
Stytting á nafninu Abía.
Eða „Nehústan“.
Það er, alla staði, óháð íbúafjölda.
Talenta jafngilti 34,2 kg. Sjá viðauka B14.
Orðrétt „hjó“.
Eða „rabsake“.
Eða „rabsaris“.
Eða „tartan“.
Eða „sagnaritari“.
Eða „sýrlensku“.
Orðrétt „komið út til mín“.
Eða „sagnaritari“.