Síðara bréfið til Korintumanna 3:1–18
3 Erum við nú aftur farnir að mæla með sjálfum okkur? Eða þurfum við, eins og sumir, meðmælabréf til ykkar eða frá ykkur?
2 Þið eruð bréf okkar,+ skrifað á hjörtu okkar, þekkt og lesið af öllum mönnum.
3 Það er augljóst að þið eruð bréf Krists sem við höfum skrifað með þjónustu okkar,+ ekki með bleki heldur með anda lifandi Guðs, ekki á steintöflur+ heldur á töflur úr holdi, á hjörtu.+
4 Við höfum þetta traust frammi fyrir Guði vegna Krists.
5 Við eignum ekki sjálfum okkur heiðurinn af því að vera hæfir til þessa heldur kemur hæfni okkar frá Guði.+
6 Hann hefur gert okkur hæfa til að vera þjóna nýs sáttmála,+ ekki til að þjóna skriflegu lagasafni+ heldur andanum. Lagasafnið dæmir til dauða+ en andinn veitir líf.+
7 Lagasafninu, sem leiðir til dauða og var letrað á steina,+ var miðlað með þvílíkri dýrð að Ísraelsmenn gátu ekki horft framan í Móse vegna þess hve andlit hans ljómaði.+ En þessi dýrð átti eftir að hverfa.
8 Ætti þá ekki þjónusta andans+ að vera enn dýrlegri?+
9 Fyrst lagasafnið, sem sakfellir,+ var dýrlegt+ hlýtur þjónustan sem réttlætir að vera miklu dýrlegri.+
10 Það sem einu sinni var dýrlegt hefur verið svipt dýrð sinni vegna þeirrar dýrðar sem yfirgnæfir hana.+
11 Fyrst það sem átti að hverfa kom fram með dýrð+ hlýtur dýrð þess sem er varanlegt að vera miklu meiri.+
12 Þar sem við höfum slíka von+ getum við talað djarfmannlega
13 en gerum ekki eins og Móse sem huldi andlit sitt með slæðu+ til að Ísraelsmenn sæju ekki endalok þess sem átti að hverfa.
14 En þeir voru skilningssljóir+ og allt til þessa dags hvílir sama slæðan yfir þeim þegar gamli sáttmálinn er lesinn+ því að hún verður ekki fjarlægð nema með hjálp Krists.+
15 Já, allt til þessa dags hvílir slæða yfir hjörtum þeirra+ hvenær sem lesið er upp úr ritum Móse.+
16 En þegar einhver snýr sér til Jehóva* er slæðan fjarlægð.+
17 Jehóva* er andinn+ og þar sem andi Jehóva* er, þar er frelsi.+
18 Við öll sem erum ekki lengur með slæðu fyrir andlitinu endurspeglum dýrð Jehóva.* Við umbreytumst í þessa sömu mynd til að endurspegla æ betur dýrð hans* og verðum nákvæmlega eins og Jehóva,* það er að segja andinn,* gerir okkur.+
Neðanmáls
^ Sjá viðauka A5.
^ Sjá viðauka A5.
^ Sjá viðauka A5.
^ Sjá viðauka A5.
^ Orðrétt „mynd frá dýrð til dýrðar“.
^ Sjá viðauka A5.
^ Eða hugsanl. „eins og andi Jehóva“.