Jakobsbréfið 5:1–20

  • Viðvörun til auðmanna (1–6)

  • Guð blessar þolinmæði og þolgæði (7–11)

  • Látið „já“ ykkar merkja já (12)

  • Trúarbæn er áhrifarík (13–18)

  • Syndara hjálpað að snúa til baka (19, 20)

5  Hlustið, þið auðmenn, grátið og kveinið yfir þeim hörmungum sem koma yfir ykkur.+  Auður ykkar er orðinn fúinn og fötin mölétin.+  Gull ykkar og silfur er sundurryðgað, og ryðið vitnar gegn ykkur og étur upp hold ykkar. Það sem þið hafið safnað verður eins og eldur á síðustu dögum.+  Heyrið! Laun verkamannanna sem slógu akra ykkar hrópa stöðugt því að þið hafið ekki greitt þau, og Jehóva* hersveitanna hefur heyrt kornskurðarmennina kalla á hjálp.+  Þið hafið lifað í munaði og sjálfsdekri á jörðinni. Þið hafið alið hjörtu ykkar fram á slátrunardag.+  Þið hafið sakfellt, þið hafið myrt hinn réttláta. Stendur hann ekki gegn ykkur?  Verið því þolinmóð, bræður og systur, fram að nærveru Drottins.+ Sjáið! Bóndinn bíður eftir dýrmætum ávexti jarðarinnar. Hann bíður þolinmóður eftir honum fram að haustregni og vorregni.+  Verið þið líka þolinmóð.+ Styrkið hjörtu ykkar því að nærvera Drottins er í nánd.+  Kvartið* ekki hvert undan öðru, bræður og systur, til að þið verðið ekki dæmd.+ Dómarinn stendur við dyrnar. 10  Bræður og systur, takið spámennina til fyrirmyndar sem töluðu í nafni Jehóva.*+ Þeir þoldu illt+ og voru þolinmóðir.+ 11  Við teljum þá lánsama* sem hafa verið þolgóðir.+ Þið hafið heyrt um þolgæði Jobs+ og hvernig Jehóva* leiddi mál hans til lykta.+ Þið sjáið að Jehóva* er mjög umhyggjusamur* og miskunnsamur.+ 12  Umfram allt, bræður mínir og systur, hættið að sverja, hvort heldur við himin eða jörð eða við nokkuð annað. En látið „já“ ykkar merkja já og „nei“ ykkar nei+ svo að ekki sé hætta á að þið fáið dóm. 13  Þjáist einhver á meðal ykkar? Þá biðji hann stöðugt.+ Liggur vel á einhverjum? Þá syngi hann sálma.+ 14  Er einhver veikur á meðal ykkar? Þá kalli hann til sín öldunga+ safnaðarins, og þeir skulu biðja fyrir honum og bera á hann olíu+ í nafni Jehóva.* 15  Trúarbænin mun lækna hinn veika* og Jehóva* reisir hann á fætur. Og ef hann hefur syndgað verður honum fyrirgefið. 16  Játið því syndir ykkar+ opinskátt hvert fyrir öðru og biðjið hvert fyrir öðru svo að þið læknist. Innileg bæn réttláts manns er mjög áhrifarík.*+ 17  Elía var maður eins og við, en þegar hann bað þess í einlægni að ekki skyldi rigna þá rigndi ekki í landinu í þrjú ár og sex mánuði.+ 18  Síðan bað hann aftur og þá kom regn af himni og jörðin bar ávöxt.+ 19  Bræður mínir og systur, ef einhver meðal ykkar villist frá sannleikanum og einhver annar hjálpar honum að snúa til baka, 20  þá vitið að hver sem snýr syndara af rangri braut+ bjargar honum* frá dauða og hylur fjölda synda.+

Neðanmáls

Eða „Nöldrið“. Orðrétt „Stynjið“.
Eða „samúðarfullur“.
Eða „blessaða“.
Eða hugsanl. „hinn þreytta“.
Orðrétt „er kraftmikil meðan hún er að verki“.
Eða „sál hans“.