Orðskviðirnir 2:1–22
2 Sonur minn, ef þú tekur við orðum mínumog varðveitir boðorð mín,+
2 ljáir viskunni eyra+og hneigir hjartað að hyggindum,+
3 já, ef þú kallar á skilninginn+og hrópar á hyggindin,+
4 ef þú leitar að þeim eins og silfri+og grefur eftir þeim eins og földum fjársjóðum,+
5 þá skilurðu hvað það er að óttast Jehóva+og þú kynnist Guði+
6 því að Jehóva veitir visku,+af munni hans kemur þekking og hyggindi.
7 Hann varðveitir viskuna handa hinum heiðarleguog er skjöldur hinna ráðvöndu.+
8 Hann vakir yfir stígum réttlætisinsog verndar veg sinna trúu.+
9 Þá skilurðu hvað er réttlátt, rétt og sanngjarnt,skilur hverja braut hins góða.+
10 Þegar viska kemur í hjarta þitt+og þekking gleður sál* þína+
11 mun skynsemin vaka yfir þér+og hyggindin vernda þig.
12 Það bjargar þér frá vegi hins illa,frá mönnum sem rangsnúa hinu rétta,+
13 frá þeim sem yfirgefa götur réttlætisinsog ganga á vegum myrkursins,+
14 frá þeim sem hafa ánægju af vonskuverkum,og gleðjast yfir illsku og spillingu,
15 þeim sem fara hlykkjóttar leiðirog eru svikulir í öllu sem þeir gera.
16 Það bjargar þér frá siðspilltri* konu,frá tælandi orðum siðlausrar* konu+
17 sem yfirgefur ástvin* æsku sinnar+og gleymir sáttmála Guðs síns.
18 Hús hennar sekkur niður til dauðansog götur* hennar liggja til hinna dánu.+
19 Enginn sem hefur mök við hana* snýr aftur,né ratar til baka inn á götur lífsins.+
20 Fylgdu því vegi góðra mannaog haltu þig á stígum hinna réttlátu.+
21 Hinir réttlátu einir munu búa á jörðinniog hinir ráðvöndu* verða þar áfram.+
22 En hinum illu verður útrýmt af jörðinni+og svikarar verða upprættir þaðan.+
Neðanmáls
^ Sjá orðaskýringar.
^ Orðrétt „framandi“. Greinilega konu sem fylgir ekki siðferðisreglum Guðs.
^ Orðrétt „útlendrar“. Greinilega konu sem er fjarlæg Guði.
^ Eða „eiginmann“.
^ Orðrétt „slóðir“.
^ Orðrétt „gengur inn til hennar“.
^ Eða „ámælislausu“.