Orðskviðirnir 4:1–27
4 Hlustið, synir mínir, á föðurlegan aga,+takið vel eftir til að þið fáið skilning.
2 Ég ætla að gefa ykkur góð ráð,hafnið ekki því sem ég kenni ykkur.*+
3 Ég var föður mínum góður sonur+og sá sem móðir mín elskaði mest.+
4 Hann kenndi mér og sagði: „Hjarta þitt haldi fast við orð mín.+
Haltu boðorð mín og þá muntu lifa.+
5 Aflaðu þér visku, aflaðu þér skilnings.+
Gleymdu ekki orðum mínum og snúðu ekki baki við þeim.
6 Hafnaðu ekki viskunni, þá mun hún vernda þig.
Elskaðu hana, þá mun hún varðveita þig.
7 Aflaðu þér visku því að viskan er mikilvægust af öllu+og hvað sem þú gerir skaltu afla þér skilnings.+
8 Hafðu hana í miklum metum, þá mun hún upphefja þig.+
Hún heiðrar þig ef þú faðmar hana.+
9 Hún setur fallegan blómsveig á höfuð þitt,prýðir þig glæsilegri kórónu.“
10 Hlustaðu, sonur minn, og taktu við því sem ég segi,þá verða æviár þín mörg.+
11 Ég vísa þér veg viskunnar,+leiði þig á braut réttlætisins.+
12 Þegar þú gengur mun ekkert hindra för þínaog ef þú hleypur hrasarðu ekki.
13 Haltu fast í agann, slepptu honum ekki.+
Varðveittu hann því að líf þitt er undir því komið.+
14 Farðu ekki inn á braut illmennaog gakktu ekki á götu vondra manna.+
15 Forðastu hana og sneiddu hjá henni,+snúðu frá henni og farðu fram hjá.+
16 Þeir geta ekki sofið nema þeir hafi gert illt,þeim kemur ekki dúr á auga nema þeir hafi orðið einhverjum að falli.
17 Þeir borða illskunnar brauðog drekka ofbeldisvín.
18 En braut réttlátra er eins og bjartur morgunljómisem verður æ bjartari þar til komið er hádegi.+
19 Vegur vondra manna er eins og myrkrið,þeir vita ekki um hvað þeir hrasa.
20 Sonur minn, taktu eftir því sem ég segi,hlustaðu vandlega á* orð mín.
21 Misstu ekki sjónar á þeim,geymdu þau innst í hjarta þínu+
22 því að þau eru líf þeim sem finna þau+og heilsubót fyrir allan líkama þeirra.
23 Verndaðu hjartað meira en allt annað+því að þar eru uppsprettur lífsins.
24 Vertu ekki svikull í tali+og farðu aldrei með lygar.
25 Horfðu beint áfram,beindu sjónum þínum að því sem er fram undan.+
26 Gerðu götu fóta þinna greiða,*+þá verður gangan alltaf örugg.
27 Beygðu hvorki til hægri né vinstri.+
Snúðu fæti þínum frá því sem er illt.
Neðanmáls
^ Eða „lögum mínum“.
^ Orðrétt „hneigðu eyra þitt að“.
^ Eða hugsanl. „Íhugaðu vandlega hvar þú stígur“.