Sálmur 13:1–6
Til tónlistarstjórans. Söngljóð eftir Davíð.
13 Hversu lengi ætlarðu að gleyma mér, Jehóva? Að eilífu?
Hversu lengi ætlarðu að hylja auglit þitt fyrir mér?+
2 Hversu lengi á ég að vera áhyggjufullur,bera sorg í hjarta hvern dag?
Hversu lengi á óvinur minn að hrósa sigri yfir mér?+
3 Líttu til mín og svaraðu mér, Jehóva Guð minn.
Tendraðu ljós augna minna svo að ég sofni ekki svefni dauðans
4 og óvinur minn segi: „Ég hef sigrað hann,“og fagni síðan yfir ógæfu minni.+
5 Ég treysti á tryggan kærleika þinn,+hjarta mitt gleðst yfir hjálp þinni.+
6 Ég vil syngja fyrir Jehóva því að hann hefur launað mér ríkulega.+