Sálmur 20:1–9

  • Guð bjargar smurðum konungi sínum

    • Sumir treysta á stríðsvagna og hesta „en við áköllum nafn Jehóva“ (7)

Til tónlistarstjórans. Söngljóð eftir Davíð. 20  Jehóva svari þér á degi neyðarinnar,nafn Guðs Jakobs verndi þig.+   Megi hann senda þér hjálp frá helgidóminum,+styðja þig frá Síon.+   Hann muni eftir öllum fórnargjöfum þínumog hafi velþóknun á brennifórnum þínum.* (Sela)   Hann gefi þér það sem hjarta þitt þráir+og láti öll áform þín heppnast.   Við hrópum af gleði því að þú hefur frelsað okkur,+lyftum sigurfána í nafni Guðs okkar.+ Jehóva uppfylli allar óskir þínar.   Nú veit ég að Jehóva frelsar sinn smurða.+ Hann svarar honum frá sínum helga himni,bjargar honum* með hægri hendi sinni.+   Sumir treysta á stríðsvagna og aðrir á hesta+en við áköllum nafn Jehóva Guðs okkar.+   Þeir hafa hnigið niður og falliðen við höfum risið á fætur og stöndum uppréttir.+   Jehóva, bjargaðu konunginum!+ Hann svarar okkur þegar við hrópum á hjálp.+

Neðanmáls

Orðrétt „álíti brennifórnir þínar feitar“.
Eða „vinnur mikla sigra“.