Sálmur 56:1–13
Til tónlistarstjórans. Sungið við „Þögla dúfan langt í burtu“. Miktam* eftir Davíð þegar Filistear gripu hann í Gat.+
56 Hjálpaðu mér, Guð, því að dauðlegir menn ráðast á mig,*allan daginn ofsækja þeir mig og berjast gegn mér.
2 Óvinir mínir glefsa í mig allan daginn,margir berjast gegn mér fullir hroka.
3 Þegar ég er hræddur+ reiði ég mig á þig.+
4 Ég treysti Guði og lofa orð hans,set traust mitt á Guð og er ekki hræddur.
Hvað geta mennirnir gert mér?+
5 Allan daginn gera þeir mér lífið leittog hugsa um það eitt að gera mér mein.+
6 Þeir sitja um mig til að ráðast á mig,fylgjast með hverju skrefi mínu+og bíða færis að ráða mér bana.+
7 Hafnaðu þeim vegna illsku þeirra,Guð, refsaðu þjóðunum í reiði þinni.+
8 Þú tekur eftir hrakningum mínum.+
Safnaðu tárum mínum í skinnbelg þinn,+þau eru skráð í bók þína.+
9 Óvinir mínir hörfa þegar ég hrópa á hjálp.+
Guð er með mér, það veit ég fyrir víst.+
10 Ég treysti Guði og lofa orð hans.
Ég treysti Jehóva og lofa orð hans.
11 Ég set traust mitt á Guð og er ekki hræddur.+
Hvað geta mennirnir gert mér?+
12 Guð, ég vil efna heit mín við þig,+ég vil færa þér þakkarfórnir+
13 því að þú frelsaðir mig frá dauða+og forðaðir fótum mínum frá hrösun+svo að ég geti gengið frammi fyrir Guði í ljósi hinna lifandi.+