HALTU VÖKU ÞINNI
Að finna von árið 2024 – hvað segir Biblían?
Margir sjá enga lausn á þeim vandamálum sem blasa við heiminum núna árið 2024. Við getum samt fundið framtíðarvon. Hvar?
Biblían gefur von
Biblían lofar að Guð muni leysa þau vandamál sem gera okkur lífið leitt nú til dags. Innan skamms mun Guð „þerra hvert tár af augum [okkar] og dauðinn verður ekki til framar. Engin sorg, angistaróp né kvöl verður heldur til.“ – Opinberunarbókin 21:4.
Lestu greinina „Sönn von um bjartari framtíð“ til að fræðast meira um framtíðarloforð Biblíunnar.
Hvernig getur Biblían hjálpað þér núna?
Framtíðarvon Biblíunnar getur hjálpað þér að takast á við neikvæðar tilfinningar og vera bjartsýnni. (Rómverjabréfið 15:13) Hagnýt ráð Biblíunnar geta auk þess hjálpað þér að takast á við vandamál sem þú ert ef til vill að glíma við, eins og fátækt, óréttlæti eða veikindi.
Sjáðu hvernig von Biblíunnar hjálpaði manni að finna frið og hamingju þrátt fyrir að alast upp við fátækt. Horfðu á myndbandið Juan Pablo Zermeño: Jehóva veitti mér innihaldsríkt líf.
Kynntu þér hvernig Biblían getur hjálpað þér þegar þú finnur til sektarkenndar, ert dapur, kvíðinn eða syrgir ástvin. Lestu greinina „Getum við fundið huggun í Biblíunni?“
Sjáðu hvernig kona sem var í hernum fann von í Biblíunni, en hún hafði að eigin sögn verið ‚alvarleg og skort umhyggjusemi‘. Horfðu á myndbandið Ég lagði riffilinn á hilluna.
Gerðu 2024 að góðu ári fyrir þig og fjölskyldu þína. Kynntu þér nánar hvernig Biblían getur hjálpað. Prófaðu ókeypis biblíunámskeið. Sjáðu hvernig Guð getur gefið þér frið núna og „von og góða framtíð“. – Jeremía 29:11.