Vissir þú?
Hvers vegna var gott að Jehóva skyldi leyfa Ísraelsmönnum að fórna tvenns konar dúfum?
SAMKVÆMT Móselögunum tók Jehóva bæði við turtildúfum og dúfum að fórn. Þessir fuglar voru alltaf nefndir saman í lögunum um fórnir og það mátti skipta öðrum út fyrir hinn. (3. Mós. 1:14; 12:8; 14:30) Hvers vegna var það gagnlegt? Ein ástæða er að turtildúfur voru ekki alltaf fáanlegar. Hvernig stóð á því?
Turtildúfur eru farfuglar sem hafast við um allt Ísraelsland á sumrin. Á haustin fljúga þær suður á bóginn til heitari landa en snúa aftur til Ísraels á vorin. (Ljóðalj. 2:11, 12; Jer. 8:7) Í Ísrael til forna var því erfitt fyrir fólk að færa turtildúfur í fórn að vetri til.
Dúfur eins og bjargdúfur flytja sig hins vegar ekki milli staða og voru því aðgengilegar allt árið í Ísrael. Dúfur voru auk þess hafðar sem húsdýr. (Samanber Jóhannes 2:14, 16.) Í bókinni Bible Plants and Animals segir: „Í öllum þorpum og bæjum í Palestínu voru dúfur hafðar sem húsdýr. Hvert heimili átti sitt dúfnaskýli, eða dúfnaholu í vegg, þar sem fuglarnir gátu haldið til.“ – Samanber Jesaja 60:8.
Jehóva sýndi þannig að hann er bæði kærleiksríkur og sanngjarn með því að taka við fuglum að fórn sem auðvelt var fyrir Ísraelsmenn að ná í árið um kring.